top of page
Untitled design (8).png
592182972_1343103051194470_6398912836514613165_n.jpg

Helga Guðrún Gunnarsdóttir

Helga Guðrún Gunnarsdóttir er fædd 31. ágúst 1980 á Ísafirði. Hún hóf nám í hárgreiðslu aðeins 17 ára gömul hjá Hárgreiðslustofu Siggu Þrastar og útskrifaðist árið 2001. Helga lauk meistararéttindum í hárgreiðslu í desember 2002 og síðar kennsluréttindum frá Kennaraháskólanum í Reykjavík árið 2007. Hún er nú að ljúka BS-gráðu í félagsvísindum með áherslu á afbrotafræði frá Háskólanum á Akureyri, þar sem áhugi hennar á mannlegu eðli, samfélagsfræðum og afbrotafræði hefur blómstrað. Helga hefur alla tíð notið þess að vinna með höndunum og hefur gaman af því að prjóna, föndra og skapa. Hún býr í dag í Cuxhaven í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum, Vilhelm Harðarsyni, þremur af fjórum börnunum þeirra og þýska fjárhundinum Derrick.

bottom of page